Færsluflokkur: Grænmetisréttir

Lasagne með soyakjöti (CafeSigrún)

Þessi uppskrift er tekin frá síðunni cafesigrun.com og er blanda úr 4 uppskriftum að lasagne. Ég fann enga sem ég var alveg nógu ánægð með, sumar voru allt of óhollar, aðrar voru með kjöti, enn aðrar bara með soðnu grænmeti, svo ég prufaði þessa og hún kom okkur bara verulega á óvart!!! Ég er ekki hrifin af pasta sem slíku þ.e. hvítu hveiti, en ég hef stundum fundið spelti lasagne plötur og nota ég þær þá. Spelt pastaplötur fást til dæmis í Yggdrasli (annars má nota heilhveiti lasagneplötur). Já og í staðinn fyrir óholla ostasósu, þá nota ég kotasælu, rifinn, magran ost og egg (2 egg og 1 eggjahvítu). Ég veit að það er ekki eins og "hvíta sósan" í venjulegu lasagne, en svo miklu, miklu hollara fyrir mann!!! Athugið að gott er að láta soyakjötið liggja í marineringu í nokkra klukkutíma, jafnvel yfir nótt.
 
Lasagne með soyakjöti
fyrir 5-6 (tvö eldföst mót)

  • 1 bolli (130 gr) þurrt, óerfðabreytt (GM free) soyakjötshakk (minced) látið liggja í nokkra klukkutíma (jafnvel yfir nótt) í 1 grænmetisteningi (ég nota Rapunzel), 1 tsk blönduðu ítölsku kryddi og 1 tsk pipar og nægu sjóðandi vatni til að það blotni vel í soyakjötinu öllu. Hægt er að kaupa brúnt soyakjöt í London en hef bara séð ljóst á Íslandi. Ef þið eruð á ferðinni í London þá getið þið keypt svoleiðis t.d. í heilsubúðunni Holland & Barret
  • 500 gr lasagneplötur (helst spelti). Ef plöturnar eru alveg þurrar má forsjóða þær í nokkrar mínútur. Ef notaðar eru ferskar þarf ekki að sjóða þær.
  • 150 gr sveppir í sneiðum
  • 1 stór dós af kotasælu (400 gr)
  • 500 ml krukka pastasósa (með tómat, basil, lauk og sveppum. Passið bara að pastasósan sé holl þ.e. ekki fitumikil og ekki með neinum sykri). Hægt er að fá góðar, lífrænt framleiddar pastasósur í flestum heilsubúðum
  • 250 gr frosið spínat, vatnið kreist úr
  • 1 tsk múskat
  • 1 tsk heilsusalt (Herbamare)
  • 2 tsk svartur pipar
  • 1-2 msk ferskur (helst) parmesan ostur
  • 400 gr rifinn, magur mosarella eða rifinn magur cheddar eða gouda ostur (11%)
  • 3 meðalstór egg, (2 heil egg og 1 eggjahvíta)

    "Kjötsósan"
  • Blandið pastasósunni saman við soyakjötið og látið standa í a.m.k. 30 mínútur en ekki verra ef það er yfir nótt.

    "Ostasósan"
  • Blandið eggjunum, 1 bolla af rifnum osti, og kotasælunni saman.

    Aðferð:
  • Forhitið ofninn í 200°C
  • Takið til frekar stórt, ferkantað eldfast mót.
  • Setjið fyrst þunnt lag af kjötsósu, svo lasagneplötur, svo ostasósu, spínat, sveppi, kjötsósu, lasagneplötur, ostasósu, spínat, sveppi og loks fullt af rifnum osti.
  • Að lokum skal krydda með svörtum pipar, múskati og parmesanosti.
  • Hitið í 30-35 mínútur á 190-200°C
  • Það er að sjálfsögðu hægt að búa til sína eigin pastasósu, en það er fljótlegra að kaupa tilbúna og þær eru oft svo ansi ferskar og góðar þessar lífrænt framleiddu með tómat og basil.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband